"

Hellishólar, Fljótshlíð

Hellishólar eru í um 10 km fjarlægð frá Hvolsvelli. Þegar komið er að Hvolsvelli er ekið áfram að enda bæjarins en þar er skilti á vinstri hönd sem vísar að Fljótshlíð. Ekið er í ca 10 mín eftir þeim vegi að Hellishólum.


Þjónusta í boði

  • Opið allt árið
  • Salerni
  • Kalt vatn
  • Sturta
  • Rafmagn
  • Leikvöllur
  • Heitt vatn
  • Þvottavél
  • Golfvöllur

Lýsing á aðstöðu

Á svæðinu er góð salernisaðstaða, sturtur, þvottavél og þurrkar. Þar er stórt leiksvæði fyrir börn með , hoppubelg, rólum, rennibrautum og fleiru. Á svæðinu er einnig frábær 9 holu golfvöllur, veiðivatn. Þá er einnig veitingastaður sem er opin alla daga. Einnig er á svæðinu 36 herbergja Hótel og 24 sumarhús .
Svæðið er fyrsta flokks tjaldsvæði og er rafmagn í boði fyrir hjólhýsi, húsbíla og fellihýsi eftir 15 mai.

25 ára aldurstakmark er á svæðið.


Verð

Verð 2023

2.300 kr. per mann per nótt
Frítt fyrir 13 ára og yngri

Rafmagn 1.600 kr nóttin.
20% afláttur fyrir eldriborgara 67+.