"

Reyðarfjörður

Tjaldsvæðið á fallegum stað við Andapollinn, lítilli tjörn á vinstri hönd við innkeyrsluna í bæinn.


Þjónusta í boði

  • Leikvöllur
  • Sturta
  • Rafmagn
  • Þvottavél
  • Gönguleiðir

Lýsing á aðstöðu

Tjaldsvæðið er á fallegum stað við Andapollinn, lítilli tjörn á vinstri hönd við innkeyrsluna í bæinn. Á svæðinu eru sturtur, salernisaðstaða, þvottavél og rafmagn, en losun fyrir húsbíla er hjá þjónustumiðstöð Olís, skammt frá tjaldsvæðinu. Upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn er opin á sumrin í Íslenska stríðsárasafninu við Heiðarveg.

Eftirfarandi þjónusta er í boði á tjaldsvæðinu:
Salerni, kalt og heitt vatn, ruslagámar, klóaklosun fyrir húsbíla (400 m), þvottavél, þurrkari, rafmagn, sturta, bekkir og borð, veitingahús (400 m), kaffihús (1 km), vínveitingar (1 km), dagvöruverslun (1 km), bensínstöð (400 m), fjallasýn, gönguleiðir, leikvöllur (1,5 km), íþróttavöllur (1,5 km), veiði, golf, heilsugæsla (800 m).
Opinn eldur bannaður, hundar í bandi leyfðir.

Umsjón með tjaldsvæðinu sumarið 2018 hefur Lára Björnsdóttir – sími 7760063 Heimilt er að hafa hunda á tjaldsvæðum Fjarðabyggðar, svo framarlega sem þeir eru hafðir í ól. Lausaganga hunda er óheimil í Fjarðabyggð nema á skilgreindum hundasvæðum.


Verð

Verð 2023

Fullorðnir: 1.800 kr
14 ára og yngri: Frítt
Eldri borgarar og öryrkjar: 1.000 kr
Rafmagn: 1300 kr