"

Stafafell í Lóni

Tjaldstæðið Stafafelli er rólegt og hljóðlátt tjaldstæði umvafið náttúru nálægt hringveginum. Í um 25 mínútna fjarlægð frá Höfn má finna tjaldstæðið og er það staðsett í Lóninu. Stafafellsfjöll, einnig þekkt sem Lónsöræfi eru þekkt útivistarsvæði og náttúruparadís sem býður upp á mikið af gönguleiðum, hægt er að fara í dagsferðir labbandi af tjaldstæðinu en einnig er stutt að keyra inn að Hvannagili og hefja göngu þar. Á tjaldstæðinu eru salerni, sturtur, þvottavél, þurrkari, eldunaraðstaða og internet í móttöku.


Þjónusta í boði

  • Salerni
  • Kalt vatn
  • Hestaleiga
  • Sturta
  • Rafmagn
  • Heitt vatn
  • Aðgangur að neti
  • Þvottavél
  • Gönguleiðir

Lýsing á aðstöðu

Nóg pláss er fyrir tjöld, húsbíla, fellihýsi og tjaldvagna en það eru 8 rafmagnsstæði í boði. Eldunaraðstaða er á svæðinu ásamt salernum og sturtum.

Opnunartími

Tjaldstæðið er opið frá 15.apríl til 1.nóvember.


Verð

2023

Fullorðnir - 2.000 kr.
Börn 0 -12 ára - Frítt

Rafmagn: 1.000 kr á dag.

Sturta - 500 kr.