Tjaldsvæðið Árnesi er stutt frá mörgum af helstu náttúruperlum Þjórsárdals. Á svæðinu er leikvöllur, sundlaug og fótboltavöllur.
Ath. Ekki er hægt að hringja og bóka stæði hjá okkur né láta taka frá stæði.
Tjaldsvæðið er í fallegu umhverfi við Kálfá. Rúmgóðar flatir með 60 rafmagnstenglum einnig góð hliðarsvæði. Á staðnum er fótboltavöllur, leikvöllur, gistiheimili og Árborg verslun / veitingar. Þjórsárstofa, veitingar / bar.
Verð 2023
Fullorðinn: 1800kr
Öryrkjar og eldri borgarar: 1200kr
Börn 0-11 ára: Frítt
Börn 12 – 16 ára: 1200kr
Rafmagn: 1000kr