
🚀 Kíktu á bakvið tjöldin!
Við erum að taka tjalda.is í gegn - kíktu á nýja vefinn.
Tjaldsvæðið Ásbrandsstaðir er vel staðsett, aðeins um 8 km frá Vopnafirði.
Tjaldsvæðið tvískipt, annar hlutinn er slétt tún með rafmagnsstaurum og hinn hlutinn er malarsvæði með rafmagnsstaurum. Á svæðinu er þjónustuhús með tveim salernum og sturtu. Þar er einnig eldhús með eldunaraðstöðu, tvískiptum ísskáp og pappadiskum og plast hnífapörum ef gestum vantar. Þar eru borð og stólar ásamt litlu borði fyrir börn. Úti er tréborð með áföstum bekkjum. Nýlega er búið að tengja ljósleiðara við aðstöðuhúsið.
Einnig er leiksvæði með leiktækjum, meðal annars trampolini og kastala.
Búið er að bæta aðkeyrsluna svo nú er hún fær bílum af öllum stærðum og gerðum.
Hundar eru leyfðir ef óskað er sérstaklega eftir því.
Verð 2025
Verð fyrir fullorðna án rafmagns, 18-67 ára: 1.800 kr.
Verð fyrir fullorðna með rafmagni, 18-67 ára: 2.200 kr.
Ellilífeyrisþegar / Öryrkjar: 1.200 kr.
12-17 ára: 1200 kr.
Frítt fyrir 11 ára og yngri.