"

Ásbyrgi

Tjaldsvæðið í Ásbyrgi er lokað frá nóvember þar til lok apríls. Í Ásbyrgi er stórt tjaldsvæði með aðstöðu fyrir tjöld, fellihýsi og húsbíla. Rafmagnstengi eru á tjaldsvæðinu.


Þjónusta í boði

  • Leikvöllur
  • Þvottavél
  • Golfvöllur
  • Rafmagn
  • Salerni
  • Sturta
  • Gönguleiðir

Lýsing á aðstöðu

Í Ásbyrgi er annað af tveimur tjaldsvæðum Vatnajökulsþjóðgarðs í Jökulsárgljúfrum, í Vesturdal er minna tjaldsvæði. Þjóðgarðurinn er opinn gestum allt árið um kring en tjaldsvæðið í Ásbyrgi er opið frá 1. apríl til 31. október. Ásbyrgi liggur við þjóðveg 85. Frá Húsavík eru um 65 km austur til Ásbyrgis. Einnig er hægt að fara af hringveginum (1) norður Dettifossveg (862) að þjóðvegi 85. Það ber þó að athuga að þessi leið getur verið lokuð/ófær að vetri.

Í Ásbyrgi er stórt tjaldsvæði með aðstöðu fyrir tjöld, fellihýsi og húsbíla. Rafmagnstengi eru á tjaldsvæðinu (48 tenglar með 1500 W). Í snyrtihúsi eru 4 sturtur fyrir hvort kyn, þvottavél og þurrkaðstaða. Útigrill eru á tjaldsvæðinu (kolagrill), leiktæki og áningaborð. Í Ásbyrgi er Gljúfrastofa, upplýsinga-og þjónustumiðstöð Vatnajökulsþjóðgarðs á norðursvæði. Í Gljúfrastofu er áhugaverð sýning um náttúrfar og jarðfræði Jökulsárgljúfra. Þar er einnig hægt að fá upplýsingar um náttúru og sögu svæðisins, gönguleiðir og þjónustu. Á tjaldsvæðinu í Ásbyrgi er einnig lítið afgreiðsluhús er kallast Álfhóll. Álfhóll er opinn frá seinni parti dags og langt fram á kvöld. Þar eiga gestir að ganga frá greiðslum vegna gistingar.

Fjölbreyttar og vel merktar gönguleiðir eru innan þjóðgarðsins. Yfir hásumarið er boðið upp á fjölbreytta dagskrá, þar sem boðið er m.a. upp á fræðsluferðir, barnastundir, kvöldgöngur og varðeld um verslunarmannahelgi. Dagskrána er hægt er að nálgst á heimasíðu þjóðgarðsins.
Ró skal vera á tjaldsvæðinu á milli kl 23:00 – 07:00.
Salernið í Ásbyrgi er með aðgengi fyrir hjólastóla.
Hundar eru leyfðir í bandi.

Nánar um tjaldsvæðið í Ásbyrgi hér á https://www.vatnajokulsthjodgardur.is/svaedi/jokulsargljufur/tjaldsvaedid-i-asbyrgi


Verð

Verð 2023

Með aðgengi að rafmagni
7.000 kr. - Húsbíll/hjólhýsi/fellihýsi/tjaldvagn/topptjald/tjald (1-6 pers.)
5.600 kr. - Eldri borgarar og öryrkjar

Án aðgengi að rafmagni
3.000 kr - Lítið tjald (1-2 pers.)
2.400 kr. - Eldri borgarar og öryrkjar

4.000 kr. - Stórt tjald (3-6 pers.)
3.200 kr. - Eldri borgarar og öryrkjar

5.000 kr. - Húsbíll/hjólhýsi/fellihýsi/tjaldvagn/topptjald (1-6 pers.)
4.000 kr. - Eldri borgarar og öryrkjar

Gjaldið miðast við gistingu í stæði í eina nótt.
· Í hverju stæði má vera ein gistieining og allt að sex gestir, nema annað sé tekið fram.
· Stæði eru ýmist með aðgengi að rafmagni*eða án rafmagns.
· Eldri borgurum (67 ára og eldri) og öryrkjum er veittur 20% afsláttur af gistigjöldum.

*Athuga þarf að rafmagnstenging er einungis ætluð fyrir rafmagnstæki innan stæðis. Óheimilt er að nýta umræddar tengingar til að hlaða bifreiðar, kerfin eru hvorki nógu öflug né örugg fyrir slíka hleðslu.