"

Hallormsstaður Atlavík

Í Atlavík eru tvö salernishús með heitu og köldu rennandi vatni. Þar er aðstaða fyrir uppvask, losun ferðasalerna, salerni fyrir fatlaða, útigrill, borð og stólar ásamt leikvelli.

Á tjaldsvæðinu er sorp flokkað og eru flokkunartunnurnar staðsettar við salernin

Hallormsstaðaskógur er mjög vinsæll fyrir útivist enda fallegur staður. Það eru yfir 40 km af gönguleiðum á svæðinu (sjá kortið: https://www.skogur.is/static/files/hallormsstadaskogur/hallormsstadaskogur2017_isl_36x52cm_lores.pdf). Í skóginum er fjölskylduvænt Trjásafn með yfir 90 mismunandi gerðir trjáa. Þar er einnig Hótel Hallormsstaður með 100 herbergi og veitingastað.


Þjónusta í boði

  • Þurrkari
  • Salerni
  • Sturta
  • Gönguleiðir
  • Leikvöllur
  • Þvottavél
  • Veitingahús

Lýsing á aðstöðu

Tjaldsvæðin í skóginum eru tvö í Atlavík og Höfðavík. Atlavík er innan við þéttbýliskjarnan á Hallormsstað. Margar litlar og stórar flatir eru þar undir birkiskermi. Höfðavík er utan við þéttbýliskjarnan á Hallormsstað, svæðið skiptist niður í 4 svæði og er afmarkanir á þeim með birkiskógi. Neðsta svæðið er niður við fallega vík. Hundar í bandi leyfðir.
Höfðavík er hægt að bóka með Parka.


Verð

Verð 2024

Gistinótt 2.000
Ellilífeyrisþegar og öryrkjar 1.500
Gistináttaskattur 300
Börn (14 ára og yngri) Frítt


Sturta: 500 kr. Sjálfsalinn tekur aðeins við 100 kr peningum. Sturturnar eru staðsettar í Höfðavík.
Þvottavél og þurrkari.: 500 kr. Sjálfsalinn tekur aðeins við 100 kr peningum
Eftir fjórar nætur er veitt afsláttarkort sem veitir 500 kr afslátt af gistinótt af fullu verði út sumarið.