"

Básar á Goðalandi (Þórsmörk)

Tjaldsvæðið er allt í kring um skála Útivistar og hægt er að tjalda á flötum ellegar í lautum í skógi vöxnu landslaginu.


Þjónusta í boði

  • Salerni
  • Svefnpokapláss
  • Hundar leyfðir
  • Kalt vatn
  • Sturta
  • Gönguleiðir

Lýsing á aðstöðu

Tjaldsvæðið í Básum er eitt af rótgrónari tjaldsvæðum landsins. Þar er náttúrufegurð mikil og mikið af áhugaverðum stöðum í nágrenninu. Þar má helst nefna gosstöðvarnar á Fimmvörðuhálsi, Eyjafjallajökull, Mýrdalsjökull, Útigönguhöfði og svo að sjálfsögðu Þórsmörk. Ferðafélagið Útivist hóf uppbyggingu á svæðinu árið 1980 og voru tjaldsvæðin útbúin fyrst en skálarnir tveir voru byggðir næstu ár á eftir. Mikið er af fallegum gönguleiðum í nágrenninu. Básahringur er fær bæði stórum og smáum fótum og fallegt útsýni er af Réttarfelli. Útigönguhöfði er svo góður fyrir þá sem vilja aðeins meiri erfiði. Hvannárgilið er svo ævintýraveröld sem má alls ekki sleppa að ganga um. Skálavörður í Básum og skrifstofa Útivistar í Reykjavík selur gott göngukort sem gott er að hafa með.

Þegar farið er í Bása er beygt út af þjóðvegi 1 inn á veg 249 sem er við Seljalandsfoss. Vegurinn breytist svo í F249 Þórsmerkurveg og er sú leið aðeins fær jeppum og stærri bílum þar sem aka þarf yfir nokkrar jökulár. Í vatnavöxtum ber að fara varlega þar sem að árnar geta orðið varasamar. Þá er best að leita upplýsinga hjá kunnugum.
Tjaldsvæði sjálft er á flötum við skálana og í skógi vöxnum lautum. Í skálunum er salerni og svo eru yfirbyggð kolagrill við skálana.


Verð

Verð 2023

Aðstöðugjald tjaldgesta: 2.000 kr
Sturta: 500 kr