Tjaldsvæðið er við rætur Álfaborgar á Borgarfirði eystra, nálægt allri þjónustu og steinsnar frá Hafnarhólma. Svæðið skiptist upp í stórt þrískipt tún og tvö malarstæði. 40 rafmagnstenglar eru á svæðinu. Hinum megin við götuna má finna Álfacafé, rótgróið kaffihús í þorpinu. Svo er í fimm mínútna göngufjarlægð tvö veitingahús, verslun og ærslabelgur. Hægt er að fara í Frisbígolf á velli sem er inn af tjaldsvæðinu við Álfaborg. Einnig er eitt mest uppbyggða kerfi gönguleiða á landinu við þröskuld Borgarfjarðar eystra og hægt er að eyða mörgum dögum í að ganga um svæðið og eiga samt nóg eftir. Uppbygging á fjallahjólreiðaleiðum er einnig hafin og stendur nú þegar til boða að fara stunda fjallahjólreiðar á svæðinu.
Þjónustuhúsin eru tvö. Í öðru húsinu er móttaka, sameiginlegt rými með litlu bókasafni og spilum ásamt eldhúsi og þvottahúsi. Í hinu eru klósett og tvær sturtur sem ganga fyrir klinki. Hægt er að leigja fjallahjól frá Fjord Bikes og frisbídiska í móttökunni.
Opnunartími
Opið yfir sumartímann. Opið í móttöku frá kl. 7.00 til kl. 23.00
Verð 2024
1900,- krónur á mann fyrir nóttina, ekkert bifreiðagjald.
333 gistináttaskattur á hverja nótt
1100,- krónur á nótt fyrir rafmagn.