
🚀 Kíktu á bakvið tjöldin!
Við erum að taka tjalda.is í gegn - kíktu á nýja vefinn.
Tjaldsvæðið er í friðsælu umhverfi við fallegt lón rétt innan við byggðina.
Tjaldsvæðið er í friðsælu umhverfi við Ósinn, rétt innan við byggðina. Þar eru sturtur, snyrting,rafmagn og losun fyrir húsbíla. Upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn er starfandi á sumrin í Gallerí Kolfreyju.
Söguleg tengsl við Frakkland eru mikil á Fáskrúðsfirði og bera götur bæjarins bæði íslensk og frönsk heiti. Lokið var við endurgerð frönsku húsanna sumarið 2014, en þekktast þeirra er líklega Franski spítalinn. Franskir dagar eru fjölskylduhátíð með frönsku ívafi sem haldin er helgina fyrir verslunarmannahelgi ár hvert á Fáskrúðsfirði. Sundlaugin á Fáskrúðsfirði er notaleg innilaug með heitum útipotti
Opnunartími
1. júní - 31. ágúst
Verð 2025
Fullorðinn 2300 kr/mann nóttin + gistináttaskattur
Eldriborgarar og öryrkjar 1800 kr/mann + gistináttaskattur
Frítt fyrir börn Yngri en 16 ára
Rafmagn 1500 kr/sólarhring
Gistináttaskattur: 400 kr