Hallormsstaðaskógur
Lýsing tjaldsvæði
Tjaldsvæðin í skóginum eru tvö í Atlavík og Höfðavík. Atlavík er innan við þéttbýliskjarnan á Hallormsstað. Margar litlar og stórar flatir eru þar undir birkiskermi. Höfðavík er utan við þéttbýliskjarnan á Hallormsstað, svæðið skiptist niður í 4 svæði og er afmarkanir á þeim með birkiskógi. Neðsta svæðið er niður við fallega vík.
Þjónusta í boði
- Gönguleiðir
- Leikvöllur
- Salerni
- Rafmagn
- Veitingahús
- Sturta
Lýsing á aðstöðu
Í Atlavík eru tvö salernishús með heitu og köldu rennandi vatni. Þar eru aðstaða fyrir uppvask, losun ferðasalerna, salerni fyrir fatlaði, útigrill, borð og stólar ásamt leikvelli.
Í Höfðavík eru svo þrjú salernishús með sturtu. Einnig er þar rafmagn fyrir húsbíla og vagna, losun ferðasalerna, útigrill ásamt borðum og stólum. Í Höðavík æslabelgur / hoppudýna.
Á báðum tjaldsvæðum er rusl flokkað.
Hallormsstaðaskógur er mjög vinsæll fyrir útivist enda fallegur staður. Það eru yfir 40 km af gönguleiðum á korti. Í skóginum er fjölskylduvænt Trjásafn með yfir 90 mismunandi gerðir trjáa. Þar er einnig Hótel Hallormsstaður með 100 herbergi og veitingastað.
Verð
Verð 2020
Fullorðnir: 1.600 kr
Eldri borgarar og öryrkjar: 1.100 kr
Börn: Frítt fyrir 14 ára og yngri
Rafmagn/sólarhringur: 1.000 kr
Sturta: 500 kr. Sjálfsalinn tekur aðeins við 100 kr peningum. Eru staðsettar í Höfðavík.
Þvottavél og þurrkari.: 500 kr og eru staðsettar í Atlavík.
Eftir 4 nætur er veitt afsláttarkort sem veitir 500 kr afslátt af gistinótt af fullu verði út sumarið.
Afsláttarkortið gildir líka í Vaglaskógi.