Hlaðir, Hvalfjarðarströnd
Lýsing tjaldsvæði
Á Hernámssetrinu er gott tjaldsvæði og sundlaug. Þar er góður veislusalur sem tekur allt að 100 manns í sæti og hentar vel fyrir árshátíðir, veislur, bekkjamót, ættarmót, fyrirtækjadaga og ráðstefnur.
Þjónusta í boði
- Sundlaug
- Sturta
- Salerni
- Gönguleiðir
Lýsing á aðstöðu
Á Hernámssetrinu er rakin einstök og merkileg saga hernáms á árunum 1940 til 1945, saga sem breytti friðsælli sveit í umgjörð heimsviðburða og skipti sköpum fyrir sigur bandamanna í síðari heimsstyrjöld. Þar getur að líta vandað safn minja og minninga sem tengjast sögu hernáms í Hvalfirði á þessum örlagaríku umrótatímum. Meðan á dvöl stendur er upplagt að fá sér kaffi og með því á kaffihúsinu “Hvíti fálkinn”.
Verð
Verð 2019
Verð fyrir fullorðna: 1.500 kr
Börn, 4 – 14 ára: 800 kr
Börn, 3 ára og yngri: Frítt
Verð fyrir rafmagn: 1.000 kr nóttin.