Tjaldsvæðið Kópaskeri er staðsett við innkeyrsluna í bæinn. Þar er góð aðstaða og góðar gönguleiðir í nágrenni.
Tjaldsvæðið á Kópaskeri er við innkeyrsluna inn í þorpið. Þjónustuhúsið með tveim vöskum, sturtu og einu salerni blasir við en tjaldsvæðið sjálft er neðan við bakkann. Þar er mjög skjólgott úr öllum áttum nema sunnanátt.
Á tjaldsvæðinu er kolagrill, rafmagnstenglar og þvottasnúra ásamt pikknik borðum.
Á Kópaskeri er heilsugæsla, útibú Lyfju, útibú Landsbankans, Skerjakolla (verslun), vínbúð, hárskeri og Röndin vélaverkstæði.
Á Kópaskeri er Skjálftasetur, Byggðasafn sem er rétt utanvið þorpið, 9 holu púttvöllur, leiktæki og margt fleira. Margar góðar gönguleiðir eru í nágrenninu og eru sýndar á korti við tjaldsvæðið. Í góðu veðri liggja selir á steinum við ströndina en einnig er fjölbreytt fuglalíf í þorpinu og allt í kring. Á Kópaskeri er verslun og veitingahúsið Skerjakolla. Vefsíða: https://www.facebook.com/budinaskerinu.skerjakolla.
* Fáir rafmagnstenglar eru á svæðinu og ekki hægt að ábyrgjast aðgengi að rafmagni.
* Aðgengi fyrir hjólhýsi að grassvæði er erfitt en hægt er að leggja á malbikuðu plani við hlið
grassvæðis.
Verð 2024
Verð á fullorðna 1.700 kr. nóttin
Börn 13-18: 800 kr. nóttin
Börn 12 ára og yngri: Frítt.
Rafmagn: 1.100 kr. nóttin