Tjaldsvæðið Melanesi er eina tjaldsvæðið á Rauðasandi. Afgirt tún u.þ.b. 2 hektarar sem er staðsett niður við sandinn.
Á Melanesi er rekið eina tjaldsvæðið á Rauðasandi. Á fallegu grænu túni sem liggur við sandinn, með dásamlegt útsýni að Látrabjargi. Af tjaldsvæðinu er hægt að ganga í allar áttir og upplifa dýralíf og náttúru.
Salerni og sturtu aðstaða fyrir alla, þ.m.t. aðgengi fyrir hjólastóla. Eldunaraðstaða, þvottavélar, útigrill, bekkir, borð og leiksvæði.
Sellátur er á sandinum og þar liggja hundruðir landsela allt árið um kring. Westfjords Adventures á Patreksfirði bjóða uppá selaferðir á traktor með kerru og eru ferðirnar farnar frá tjaldsvæðinu alla daga, ef pantað er. Frá tjaldsvæðinu er létt 1 km ganga inn að Sjöundá sem er eyðibýli sem margir þekkja úr sögunni Svartfugl eftir Gunnar Gunnarsson. Frá Sjöundá er svo hægt að ganga lengra, m.a. er miðlungs erfið ganga inn að vitanum í Skor (en sú leið er þó ekki fyrir lofthrædda), og svo er erfið en falleg gönguleið um Sjöundárdal, Ölduskarð og niður í surtarbrandsnámurnar í Stálfjalli.
Verð 2025
18 ára og eldri : 2.200 kr nóttin
12 ára og yngri : frítt
13-18 ára: 1800 kr nóttin
Eldriborgarar og öryrkjar 1800 er nóttin
Rafmagn 1500 kr nóttin
Smáhýsin eru fyrir tvo og eru bókuð á airbnb.com