"

Snorrastaðir

Ferðaþjónustan Snorrastöðum er tjaldsvæði og ferðaþjónusta á frábærum stað á Snæfellsnesi. Svæðið er friðsælt og mikil náttúrufegurð. Þaðan er stutt í gönguleiðir og að gígnum Eldborg.


Þjónusta í boði

  • Opið allt árið
  • Eldunaraðstaða
  • Rafmagn
  • Sturta
  • Gönguleiðir

Lýsing á aðstöðu

Tjaldsvæðið er staðsett við þjóðveg 54, Snæfellsnesvegur sem er rétt um 38km frá Borgarnesi. Svæðið er með mjög góða salernis og sturtuaðstöðu en þar er einnig eldurnaraðstaða með helstu nauðsynjum.

Fjölmargar náttúruperlur eru í nágrenninu en þar má helst nefna Eldborg en gönguleiðin þangað er einmitt frá Snorrastöðum. Stutt er á Snæfellsnes, inn í Dali og upp í Borgarfjörð.

Svæðið er tilvalið fyrir hópa, t.d. ættarmót en þá er tjaldsvæðinu gjarna lokað fyrir aðra gesti.


Verð

Verð 2023

Gjald fyrir gistieiningu*: 4.000 kr
*Gistieining er tjald, fellihýsi, hjólhýsi, tjaldvagn eða húsbíll.
Rafmagn: 500 kr