"

Stuðlagil Canyon Camping

Gott tjaldsvæði við Stuðlagil. Sturta í boði fyrir gjald. Ef gestir mæta fyrir kl. 17.00 hafið samband við starfsfólk í matarvagni. Ekki rafmagn í boði. Stuðlagil, náttúra, hálendi, Laugavellir, Snæfell, Askja


Þjónusta í boði

  • Sturta
  • Aðgengi fyrir hjólastóla
  • Gönguleiðir
  • Salerni
  • Kalt vatn
  • Uppþvottaaðstaða
  • Frítt fyrir börn
  • Veitingahús
  • Þráðlaust net
  • Smáhýsi til útleigu
  • Losun skolptanka
  • Eldunaraðstaða
  • Rafmagn

Lýsing á aðstöðu

Stórt og gott tjaldsvæði við Stuðlagil. Erum með veitingasölu í veitingavagni og handverksmarkað sem er opinn yfir sumarið. Glæsilegt salernishús með sturtum. Þar sem við verðum að hita allt vatn upp með rafmagni kosta sturtur 400 kr. í 100 kr mynt.
Við erum með eldhúsaðstöðu fyrir að elda mat og þvo leirtau. Rafmagn er fyrir hjólhýsi og vagna. ATH ekki er í boð rafmagn fyrir hleðslu bíla.
Mikil og stórfengleg náttúra á staðnum og 200 metrar frá Stuðlagili. Fjölmargar dagleiðir frá tjaldsvæðinu, t.d. hálendi (Snæfell, Kverkfjöll eða Askja), heiðin (vötnin, hringferð um heiðina), Sænautasel, firðirnir (Vopnafjörður, Mjófjörður, Borgarfjörður, Seyðisfjörður og fl), Kárahnjúkar, Laugavellir með náttúrlegri sturtu, Hallormsstaðir, Hengifoss og fleiri staðir. Losun fyrir ferðasalerni. Opinn eldur stranglega bannaður eða aðrar athafnir sem fela í sér íkveikjuhættu, hundar í bandi leyfðir.

Verð 2300 pr. mann en til viðbótar er gistináttaskattur pr. húsbíl/tjald/hjólhýsi. Rafmagn 1.500 pr dag.
Vegur á malarvegi inn á tjaldstæðið (c.a. 7 km.) er vart fær hjólhýsum eins og sakir standa.

Opnunartími

Opið 1. maí - 30. september


Verð

2025

2.300 kr. pr fullorðinn,
Frítt fyrir börn
1500 kr rafmagn
Sturta 400 kr. í 100 kr mynt.
Frítt WIFI
Gistináttaskattur 400 pr. húsbíl/tjald/hjólhýsi.