"

Stykkishólmur

Tjaldsvæðið er á hægri hönd þegar komið er inn í bæinn. Stutt er í alla helstu þjónustu í bænum.


Þjónusta í boði

  • Salerni
  • Sundlaug
  • Rafmagn
  • Þvottavél
  • Golfvöllur

Lýsing á aðstöðu

Tjaldstæðið er opið allt árið um kring – Þjónustuhús lokar í sept og opnar ekki aftur fyrr en sumarið á eftir – snyrtiaðstaða golfskála er opin allt árið – starfsmaður rukkar fyrir aðstöðu og aðstoðar gesti – einnig höfum við posa á staðnum ef enginn er við.

Tjaldsvæðið í Stykkishólmi er vel staðsett innan bæjarmarkanna og stutt í alla þjónustu, verslun, bakarí, bensín og sundlaugin er í göngufæri frá svæðinu (5 mín).

Frá Stykkishólmi er hægt að Snæfellsneshringinn – dagsferðir út í Flatey – skoða söfnin – fara á Kajak – fara með Særúnu og skoða eyjarnar og fuglalífið í Breiðafirði – fá sér góðan göngutúr upp á Súgandisey og horfa yfir Breiðafjörðinn.

Einnig höfum við 9 holu golfvöll sem staðsettur er við hliðina á tjaldsvæðinu og þar er hægt að leigja kylfur – tilvalið fyrir þá sem vilja sameina golf og útilegu (möguleiki á að bjóða sérstaka pakka fyrir það)

Opnunartími

Afgreiðslan í Golfskála er opin frá Ca. 20.maí Júní -ágúst 08:00 - 22:00 September eftir þörfum – alltaf hægt að ná í starfsmann.


Verð

Verð 2023

Verð fyrir fullorðna: 1.600 kr
Verð fyrir börn: Frítt fyrir 15 ára og yngri.
Ellilífeyrisþegar og öryrkjar: 1.100 kr
Rafmagn: 1100 kr fyrir nóttina

Einnig hægt að kaupa tilboðspakka ef það stendur til að vera lengur

2 dagar: 2.500 kr
3 dagar: 3.000 kr
4 dagar: 4.200 kr
5 dagar: 5.300 kr
6 dagar: 6.400 kr
Vika: 6.800 kr


Hægt er að fá millistykki fyrir rafmagn (hjólhýsi, húsbílar/ferðavagnar): 5000 kr
Endurgreiðsla:
1 nótt: 500 kr
2 nætur: 1000 kr