Tjaldsvæðið í Djúpadal er skemmtilegur viðkomustaður fyrir þá sem eru að heimsækja vestfirðina. Djúpidalur er fjölskyldu rekið ferðaþjónustu- og sauðfjárbú. Þar má finna tjaldsvæði, kofagistingu, gistiheimili og sundlaug. Dalurinn er jökulsorfin og auðugur af jarðminjum og gaman er að ganga um svæðið og leyfa sér að vera forvitin um náttúruna. Borhola sér bænum fyrir nægu heitu vatni.
Hundar eru velkomnir á tjaldsvæðinu en eru á ábyrgð eigenda. Eigendum er skylt að þrífa upp eftir sína hunda og hafa þá í bandi. Munum að það geta leynst ýmsar hættur í umhvefinu fyrir ferfættu vini okkar sem ekki eru vanir sveitinni.
Aðstöðuhús
Nærri tjaldsvæðinu er 150m2 aðstöðu hús. Þar má finna salerni, borð, stólar, sófa og eldhúskrók. Mögulegt er að leigja húsið í fyrirframákveðin tíma yfir dag eða kvöld fyrir enkasamkvæmi. Við syðri enda hússins er hoppubelgur
Tjaldsvæði og sundlaug
Tjaldsvæði fyrir tjöld með sléttu grasi. Svæði fyrir húsbíla er með malar undirlagi og gervigrasi. Rafmagn er á tjaldsvæðinu. Manir eru umhverfis tjaldsvæðið sem veita gott skjól.
Kofar eru með einbreiðu rúmi, tvíbreiðri neðri koju og einbreiðri efri koju (svefnpláss fyrir 4). Borð og stólar eru í kofanum en WC, eldunaraðstaða og sturta eru sameiginleg tjaldsvæðinu.
Lítil aðstöðuhús eru á tjaldsvæðið með WC, sturtum og útivöskum. Hægt er að stinga smáraftækjum í hleðslu í læstum skápum. Nóg er af heitu og köldu vatni á svæðinu. Sundlauginn er inni, fyrir utlan laugarhúsið er pallur og heitur pottur. Börn verða að vera í fylgd með fullorðnum til þess að meiga fara í sundlaugina. Við mælum ekki með því að fara einsamall í sund.
Opnunartími
Ferðaþjónustan Djúpadal er opin allan ársins hring. Opið er í sundlaugin frá kl 8-22 alla daga ársins (gestir eru á eigin ábyrgð í lauginni).
Verð 2024
Verðskrá fyrir tjaldsvæði
16 ára og eldri 2000 kr
Rafmagn 1000 kr
Börn 15 ára og yngri frítt
Verðskrá fyrir kofagistingu
Grunngjald fyrir Kofa + 1 gest 7000kr
Fyrir hvern gest til viðbótar 2000kr
Fyrir hvert uppbúið rúm 2500kr
Verðskrá fyrir sundlaug
16 ára og eldri 800 kr
Börn 6-15 ára 200 kr
Börn, 5 ára og yngri frítt
Gisting í húsum
Þórishólmi (gisti pláss fyrir 4) 20000kr
Sundlaugarherbergið (stúdíó fyirr 2)10000kr
Gamli bærinn (gistipláss fyrir 7) 25000kr
Stakt rúm í Gamla bænum 5000kr
Fyrir hvert uppbúið rúm 2500kr
Vinsamlegast hafið samband ef spurningar vakna eða ef þið viljið bóka gistingu.
Sími: 434-7853
djupadal@simnet.is
https://www.facebook.com/djupadal