
🚀 Kíktu á bakvið tjöldin!
Við erum að taka tjalda.is í gegn - kíktu á nýja vefinn.
Útilífsmiðstöð skáta Úlfljótsvatni er staðsett við Úlfljótsvatn í Grímsnes- og Grafningshreppi, skammt frá Ljósafossvirkjun, u.þ.b. 50 km frá Reykjavík. Þar reka skátar tjaldsvæði, sumarbúðir og skólabúðir. Alls eru um 170 pláss fyrir tjöld eða svefnvagna á Úlfljótsvatni, og um helmingur þeirra hefur aðgang að rafmagni. Bókanir á tjaldsvæðið fara fram á www.reisa.is/ulfljotsvatn
Útilífsmiðstöð skáta Úlfljótsvatni er staðsett við Úlfljótsvatn í Grímsnes- og Grafningshreppi, skammt frá Ljósafossvirkjun, u.þ.b. 50 km frá Reykjavík. Frá Reykjavík eru tvær megin akstursleiðir. Annars vegar Nesjavallaleið þar sem ekið er yfir Hengilinn og framhjá Nesjavöllum þangað til að komið er að Úlfljótsvatni. Hins vegar er ekið yfir Hellisheiði að Selfossi þar sem beygt er inn á Biskupstungnabraut (35) undir Ingólfsjalli. Þaðan er svo hægt að beygja til vinstri yfir á Grafningsveg (350) áður en komið er að Soginu, eða Þingvallaveg (36) eftir að ekið er yfir Sogið. Af Þingvallavegi er svo beygt til vinstri við Ljósafossvirkjun.
Á Úlfljótsvatni hafa skátarnir komið upp glæsilegu tjaldsvæði sem almenningi býðst að nýta sér. Tjaldsvæðið hefur verið byggt upp þannig að hægt sé að halda stór skátamót á svæðinu og því er hægt að taka á móti stórum hópum fólks og aðstaðan til fyrirmyndar. Áhersla er lögð á að taka á móti fjölskyldufólki og bjóða upp á fjölbreytta afþreyingu fyrir yngri kynslóðina. Tjaldsvæðið er ætlað fjölskyldufólki og ölvun er ekki liðin.
Aðstaðan fyrir tjaldsvæðisgesti er mjög góð. Stórar og góðar flatir við vatnið með rafmagnspóstum. Veiðileyfi er innifalið í gistigjaldi (svæði 2) og geta gestir því veitt sér ferskan silung á grillið og á meðan geta krakkarnir klifrað, róið eða skotið af boga (um helgar) eða leikið sér í þeim ótal leiktækjum sem eru á svæðinu. Grill og bekkir eru á víð og dreif sem gestir geta nýtt sér ásamt því að í þjónustumiðstöðinni er hægt nálgast allar helstu upplýsingar eða keypt sér svalandi gosdrykk. Þar er líka lítið eldhús og matsalur.
Á þjónustusvæðinu er sturtuhús með heitu vatni sem er opið tjaldgestum. Á tjaldsvæðinu eru svo lítil snyrtihús með vatnssalernum og utanáliggjandi hreinlætisaðstöðu til að þvo upp mataráhöldin. Það er því hægðarleikur einn að halda sér og fjölskyldunni hreinum og snyrtilegum jafnvel þó dvalið sé í tjöldum og börnin verða óhrein í ati dagsins.
Boðið er uppá dagskrá um helgar yfir sumarið.
Kynnið ykkur fésbókarsíðu tjaldsvæðisins til að fylgjast vel með dagskránni í sumar og vefsíðu Úlfljótsvatns þar sem finna má viðburðardagatal miðstöðvarinnar.
Um helgar er boðið uppá dagskrá en þá er opið í bátaleigu, bogfimi, klífur og fleira (14. júní til 17. ágúst).
Verð 2025
Verð fyrir fullorðna: 1.950 kr.
Öryrkjar og aldaðir: 1.150 kr
Ungmenni (13-17 ára) 750 kr.
Næturgjald fyrir gistieiningu: 450 kr (400 kr. gistináttaskattur innifalinn)
Frítt fyrir börn
Rafmagn: 1.100 kr
Aðstöðugjald fyrir daggesti: 300 kr
Innifalið í gjaldi er aðgangur að heitum sturtum, útigrillum, þjónustuhúsi og veiði í vatninu (svæði 2).
Bókað er á www.reisa.is/ulfljotsvatn - vinsamlegast bókið áður en tjaldað er.
Yngri en 18 ára þurfa að vera í fylgd með fullorðnum ábyrgðarmanni.
Langtímastæði eru í boði. Frekari upplýsingar gefur ulfljotsvatn@skatarnir.is