Fimm misstór tjaldsvæði á svæðinu. Á Flatagerði eru sturtur og klósett fyrir hreyfihamlaða.
Skjólgóð og skemmtileg tjaldsvæði fyrir tjöld, hýsi og húsbíla sem bjóða upp á salerni fyrir hreyfihamlaða og með góðu aðgengi fyrir hjólastóla á flestum svæðum. Allar bókanir fara fram á parka.is.
Stórarjóður (B) býður upp á rafmagn og salerni fyrir hreyfihamlaða og er rólegt svæði sem ætlað er þeim sem vilja slaka á og taka því rólega.
Hróarsstaðanes (C,D) er stærsta svæðið, staðsett við Fnjóskánna. Á þessu svæði er salerni, rafmagn, sturtur, þvottavél, þurrkari og aðalleiksvæðið (ærslabelgur, klifurpýramídi, lítill fótboltavöllur og sandkassasvæði).
Flatagerði (E) er með rafmagn, sturtur, þvottavél, þurrkari, salerni fyrir hreyfihamlaða, ásamt litlu leiksvæði með vegasalti og rólum. Þetta svæði er aðliggjandi fastleigustæðunum.
Brúarlundur (A) hefur salerni en ekkert rafmagn, og hentar vel fyrir stuttar dvalir og náttúruunnendum.
Boðið er upp á forbókanir í Stórarjóður (B), Hróarsstaðanesi (C) og Flatagerði (E) og eru þau skipt upp í merkt afmörkuð hólf. Í Brúarlundi (A) og Hróarsstaðanesi (D) bókar maður sér laust pláss. Þegar komið er á svæðið er hægt að velja sér laust pláss. Tjaldið ekki nema hægt sé að bóka stæði. Ekki er hægt að tryggja rafmagn í neðra Hróarsstaðarnesi (D).
Vaglaskógur er einn fallegasti birkiskógur landsins með miklum möguleikum til útivistar. Tjaldsvæðin eru tengd víðfeðmu göngustíganeti sem liggur um Vaglaskóg og göngustígakort er hægt að nálgast við upplýsingaskilti í skóginum og hjá starfsfólki.
Stutt er í Akureyri (17km í gegnum Vaðlaheiðargöng), golfvöll með veitingaskála (3km), sundlaug með verslun og mini-golfi (12km).
Nokkrir punktar til að hafa í huga:
- Án fylgdar forráðamanns er aldurstakmarkið á tjaldsvæðunum 18 ár.
- Við flokkum rusl í Vaglaskógi og biðjum við tjaldsvæðagesti að gera slíkt hið sama á meðan dvölinni stendur
- Lausaganga hunda og katta er bönnuð, en leyfilegt er að hafa dýrin í taumi
- Hægt er að kaupa skott/millistykki fyrir rafmagnstengingu hjá tjaldvörðum.
Símanúmer tjaldsvæða er: 860 4714
Opnunartími
Opið frá 23. maí til 15. september
Allar bókanir fara fram á parka.is.
Verð á nótt 2025
2.100 kr á mann
1.600 kr fyrir eldri borgara og öryrkja
1.400 kr fyrir rafmagn
• Gistináttaskattur: 400 kr per á gistieiningu á hverja nótt
Sturtugjald: 500 kr (klink) fyrir 5 mínútur af heitu vatni
Þvottavél/þurrkari: 500 kr (klink)
*Hægt er að fá skiptimynt hjá tjaldvörðum
Langtímaleiga - 15 til 29 dagar 3500 kr. hver nótt
Langtímaleiga - 30 til 59 dagar 2600 kr. hver nótt
Langtímaleiga - 60 til 105 dagar 2100 kr. hver nótt
FRÍTT er fyrir 14 ára og yngri í fylgd með forráðamanni. Án fylgdar forráðamanns er aldurstakmarkið á tjaldsvæðunum 18 ár.
ATH. Afsláttur fæst ekki af verði eldriborgara og öryrkja.