"

Grindavík - lokað tímabundið

Tjaldsvæðið í Grindavík er vel staðsett í bænum og er stórt og vel búið. Um er að ræða 13.500 fm svæði sem staðsett er við Austurveg 26


Þjónusta í boði

  • Leikvöllur
  • Þvottavél
  • Gönguleiðir
  • Salerni
  • Sturta

Lýsing á aðstöðu

Sumarið 2009 var nýtt og glæsilegt tjaldsvæði tekið í notkun í Grindavík. Þá var nýtt 200 fermetra þjónustuhús tekið í notkun í maí 2011. Um er að ræða 13.500 fm svæði sem staðsett er við Austurveg 26. Þar eru 42 stæði fyrir húsbíla, fellihýsi og tjaldvagna. Afgirt svæði og sérhannað. Fullkomin aðstaða til seyrulosunar. Malbikuð og hellulögð bílastæði í innkomu tjaldsvæðisins. Tvö leiksvæði fyrir börn með rólum, 2 köstulunum, kóngulóarneti o.fl. Í nýja þjónustuhúsinu er eldunaraðstaða, sturtur, þvottahús og ókeypis aðgangur að interneti.

Uppákomur
Bæjarhátíðin Sjóarinn síkáti, Sjómannadagshelgina
Líf og fjör alla helgina með frábærri dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Sjá nánar á www.sjoarinnsikati.is
Jónsmessuganga, listsýningar, náttúruvika, gönguhátíð, Þórkötlustaðaréttir o.fl. Sjá www.grindavik.is

Opnunartími

Lokað tímabundið


Verð

Lokað tímabundið

Verð fyrir fullorðna kr. 2.200 (gistináttagjald innifalið).
Eldri borgara og öryrkjar: 1600
Ókeypis fyrir 14 ára og yngri.
Rafmagn kr. 1.300 kr per. sólarhring.
Einn þvottur í þvottavél kr. 800
Notkun á þurrkara kr. 800
Þvottur og þurrkari saman 1600 kr
Seyrulosun innifalin í verði.
Sturta innifalin í verði.
Bara sturta 500 kr.
Bara eldhús 600 kr. fyrir 2
Ekki er hægt að panta pláss.
Hámarksdvöl eru 7 dagar í manuði.