"

Haukafell

Tjaldsvæðið í Haukafelli er nálægt mörgum af fallegum náttúruperlum í Austur-Skaftafellssýslu. Tjaldsvæðið er mjög þekkt meðal heimamanna og hafa þeir verið duglegir að nota svæðið til útivistar og til að njóta kyrrðar og fegurðar.


Þjónusta í boði

  • Salerni
  • Losun skolptanka
  • Gönguleiðir
  • Kalt vatn
  • Hundar leyfðir

Lýsing á aðstöðu

Það er ekki rafmagn í boði á tjaldstæðinu en það er í bígerð að koma rafmagni á tjaldstæðið sumarið 2024.

Hægt er að leigja stór tjöld sem eru 16m2 á stærð, rúm, sængur, koddar, rúmföt og handklæði eru innifalin. En hægt er að bóka eða skoða betur á heimasíðunni www.haukafell.is


Verð

Verð 2023

1500 KR - á mann fyrir nóttina
1200 KR - Ellilífeyrisþegar fyrir nóttina
Frítt fyrir börn