"

Húsafell

Tjaldsvæðið í Húsafellsskógi hefur notið mikilla vinsælda í áraraðir . Stæðin eru á miðju orlofssvæðinu og göngufæri í sund, golf, leiktæki, verslun og veitingar. Tjaldsvæðið er rétt við Hótel Húsafell.


Þjónusta í boði

  • Leikvöllur
  • Þvottavél
  • Sturta
  • Golfvöllur
  • Rafmagn
  • Salerni
  • Sundlaug
  • Veitingahús
  • Gönguleiðir

Lýsing á aðstöðu

Tjaldsvæðið í Húsafellskógi

Tjaldsvæðið í Húsafellsskógi hefur notið mikilla vinsælda í áraraðir. Stæðin eru á miðju orlofssvæðinu og göngufæri í sund, golf, leiktæki, verslun og veitingar. Rafmagnstenglar eru á u.þ.b. 80 stæðum og þarf tengi skv. evrópskum stöðlum. Á tjaldsvæðinu er salerni, sturta, eldhús, heitt og kalt vatn auk þvottaaðstöðu.

Yfir hásumarið er tendraður varðeldur öll laugardagskvöld kl. 21 ef veður og brunavarnir leyfa.

Rekin er fjölskyldustefna í Húsafelli sem m.a. snýr að því að hafðar eru þarfir fjölskyldunnar í huga við uppbyggingu staðarins, leitast er við að gera gesti meðvitaða um samfélagslega ábyrgð á uppeldi barna, að unglingar skuli ávallt vera í fylgd forráðamanna og að skemmtanir miðast við sameiginlega hagsmuni fjölskyldunnar.
Umgengnisreglur Húsafells
Sýnið öðrum gestum tillitssemi. Yfir nóttina frá kl. 24:00 til kl. 09:00 er stranglega bannað að vera með hávaða eða annað ónæði
Gangið þrifalega um landið. Brýnið góða umgengni fyrir börnum og verið þeim til fyrirmyndar.
Látið allt rusl í ruslagáma, sem eru við innkeyrsluna á svæðinu.
Hlífið gróðri, bannað er að kveikja opinn eld á svæðinu. Notið ekki grill sem liggja á eða við jörð.
Akið ekki utan vegarslóða og athugið að 20 km/klst hámarkshraði er á sumarhúsa- og tjaldsvæðum.
Lausaganga hunda er stranglega bönnuð og er skylt að þrífa eftir þá.
Aðgangur ungmenna að svæðinu, án forráðamanna er bannaður
Notkun torfæruhjóla er bönnuð í landi Húsafells.
Gerið starfsfólki aðvart ef þið verðið fyrir ónæði.
Brot á lögum eða umgengisreglum varðar brottrekstur af svæðinu, án nokkurra bóta

Hægt er að leigja blakbolta, fótbolta, körfubolta og kubbaspil í tjaldmiðstöð.

Nánari upplýsingar má finna í afþreyingarmiðstöð eða í síma 435-1556 og í netfangi camping@husafell.is
Vefsíða: www.husafell.is/gisting/tjaldsvaedi

Opnunartími

Opið frá 1. júní - 31 ágúst.


Verð

Verð 2023
Gestir á tjaldsvæði skulu ávallt skrá komu sína og greiða gistigjald við komu.

Húsafellsskógur tjaldstæði:
Fullorðnir / Börn (7-17ára) fyrsta nótt 1.980 / 990 kr.
Fullorðnir / Börn auka nætur, per nótt 1.760/ 770kr.
Tjaldgjald 450 kr
Rafmagn á sólahring 1.350 kr.
Rafmagnstenglar (leiga) 5.500 kr.

Sumarstæði 75.900 kr.
Rafmagn fyrir sumarstæði 44.000 kr.

Miðað er við að dvalartíminn sé til kl 13 næsta dag.