"

🚀 Kíktu á bakvið tjöldin!

Við erum að taka tjalda.is í gegn - kíktu á nýja vefinn.

Skoða nýjan tjalda.is

Patreksfjörður

Nýja tjaldsvæðið á Patreksfirði er staðsett við Félagsheimili Patreksfjarðar sem sést vel þegar komið er inn í bæinn. Góð aðstaða er í félagsheimilinu fyrir tjaldsvæðið salerni, þvottavél, aðstaða til eldunar og þvotta. Rafmagn og seyrulosun er fyrir húsbíla, og ruslagámar eru á staðnum. Hægt er að fá leigðan sal og eldhúsaðstöðu fyrir hópa.


Þjónusta í boði

  • Gönguleiðir
  • Veitingar
  • Veiðileyfi
  • Þvottavél
  • Frítt fyrir börn
  • Sundlaug
  • Golfvöllur
  • Salerni
  • Rafmagn
  • Eldunaraðstaða

Lýsing á aðstöðu

Á Patreksfirði er gott úrval veitingastaða og kaffihúsa, auk verslunar og annarrar þjónustu. Glæsileg íþróttamiðstöð með sundlaug sem þykir skarta einu fallegasta útsýni á landinu. Hin stórfenglega náttúra svæðisins býður upp á óþrjótandi möguleika á eigin vegum en einnig er hægt er að komast í margvíslegar skipulagðar ferðir um svæðið, styttri og lengri gönguferðir, rútuferðir, siglingu og sjóstöng. Á Patreksfirði er rekin upplýsingarmiðstöð fyrir ferðamenn.

Á tjaldvæðinu er þráðlaust net.

Í nágrenninu er Rauðisandur þar sem gjarnan glittir í selavöður, Minjasafn Egils Ólafssonar í Örlygshöfn, Látrabjarg stærsta fuglabjarg Evrópu, Selárdalur í Arnarfirði þar Gísli á Uppsölum bjó og Samúel Jónsson, listamaðurinn með barnshjartað, Dynjandi einn af fegurri fossum landsins, og safn Jóns Sigurðssonar á Hrafnseyri, í Reykjafirði er heit sundlaug og náttúrulaug, margar fallegar styttri og lengri gönguleiðir auk heillandi skeljasandsfjara vítt og breitt um svæðið.

Opnunartími

15. maí og lokar 15. september.


Verð

Verð 2025

Fullorðnir fyrir 18 og eldri: 1.855 kr. á mann
Eldri borgarar og öryrkjar: 1.485 kr. á mann
Börn að 18 ára: Frítt

3 nætur dvöl: 3.888 kr á mann
4 nætur dvöl: 5.178 kr. á mann
5 nætur dvöl: 6.468 kr. á mann
6 nætur dvöl: 7.764 kr. á mann
Vikudvöl: 9.055 kr. á mann

Rafmagn hvern sólarhring: 1.594 kr
Þvottavél og þurrkari hvert skipti: 1.730 kr

Á gistinótt bætist við gistináttaskattur eins og hann er hverju sinni 400 kr per einingu