Öryggis- og persónuverndarstefna
Áreiðanleiki og öryggi er lykilatriði í öllum rekstri Computer Vision, hér eftir nefnt CV. Vegna þess leggur félagið kapp á að tryggja, með margvíslegum hætti, trúnað, áreiðanleika og örugga og ábyrga meðferð upplýsinga. Ennfremur kappkostar CV að upplýsa notendur um öryggismál og hvernig unnið er með upplýsingar þeirra svo enginn þurfi að efast um að unnið sé með upplýsingar á öruggan og löglegan hátt.
1. Gagnaöryggi og aðgangsstjórnun
Allar teningar milli myndavéla og kerfa eru dulkóðaðar. Myparking.is kerfið sjálf er aðgangsstýrt kerfi. Persónugreinanlegar upplýsingar eru óaðgengilegar notendum kerfisins.
Aðgangsstjórnun er að mestu leyti eins og í netbanka, t.d. sjálfvirk útskráning eftir 15 mínútur, kröfur um „öruggt“ lykilorð o.fl.
Upplýsingar um einstaka notendur eru eingöngu aðgengilegar starfsfólki CV og eingöngu sóttar eftir þörfum, s.s. þegar notandi greiðir ekki þjónustugjald innan uppgefins greiðslufrests. Allir starfsmenn CV eru með hreint sakavottorð og bundnir þagnarskyldu um allt sem þeir kunna að verða áskynja um notendur kerfisins. CV áskilur sér rétt til að kæra öll brot á þagnarskyldu til viðeigandi yfirvalda.
Öryggisstjóri hefur eftirlit með kerfinu og yfirsýn yfir aðgang starfsmanna að gögnum notenda. Skal hann m.a. hafa eftirlit með starfsmönnum og aðgangi þeirra að gögnum.2. Persónugreinanlegar upplýsingar í algeru lágmarki
Stefna CV er að geyma og vinna með eins lítið af persónugreinanlegum upplýsingum og mögulegt er til að geta veitt þjónustu og uppfyllt skyldur. Við notkun á kerfinu er almennum notendum til að mynda aðeins nauðsynlegt að gefa upp skráningarnúmer ökutækis þeirra, án þess að þurfa gefa upp nafn, kennitölu, heimilisfang eða aðrar persónuupplýsingar. Hins vegar býðst fyrirtækjum, s.s. bílaleigufyrirtækjum og rútufyrirtækjum að skrá sig inn í kerfið til hagræðis og í þeim tilgangi að auðvelda fyrirtækjunum umsjón og uppgjör á þjónustugjöldum. Við þá skráningu óskar CV eftir nafni, heimilisfangi, kennitölu, netfangi, og símanúmeri.
CV hefur aðgang að færsluupplýsingum en ekki bankareikningsnúmerum eða greiðslukortanúmerum.
Myparking.is kerfið sækir eingöngu upplýsingar um eigendur viðkomandi ökutækis, sé þjónustugjald ekki greitt innan fyrirfram ákveðins frests. Í framhaldinu verður krafa stofnuð á viðkomandi eiganda í innheimtukerfi banka, byggt á kennitölu eiganda viðkomandi ökutækis. Hins vegar ef þjónustugjaldið er greitt innan frests, eru engar upplýsingar sóttar til ökutækjaskrár.
CV starfar að öllu leyti í samræmi við íslensk lög um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. CV gengur úr skugga um að viðskiptavinir sínir, sem teljast ábyrgðaraðilar í skilningi laga um persónuvernd, hafi tilkynnt Persónuvernd um starfsemi sína eins og lög um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga gera ráð fyrir. CV telst vinnsluaðili í skilningi laga um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.
3. Computer Vision ábyrgist að nýta sér ekki upplýsingar um notendur á óábyrgan, óöruggan, eða ósiðlegan hátt
CV mun ekki undir nokkrum kringumstæðum afhenda, selja eða leigja persónuupplýsingar eða fjárhagsupplýsingar (færslur) notenda til þriðja aðila.
CV mun aldrei láta samskiptaupplýsingar notenda (t.d. netfang eða farsímanúmer) í té þriðja aðila. CV mun aldrei sjálft nýta samskiptaupplýsingar í öðrum tilgangi en að eiga hófleg og eðlileg samskipti við notendur vegna aðgangs þeirra og notkunar á Myparking.is
Þrátt fyrir framangreint áskilur CV sér rétt til að útbúa ópersónugreinanlegar tölfræðilegar samantektir og aðrar afleiddar upplýsingar, sem án alls vafa eru ekki persónugreinanlegar, rekjanlegar eða heimfæranlegar á notendur, og nota sér þær í viðskiptalegum tilgangi, s.s. hér segir:
Vegna rannsókna á umferðarþunga / ökutækjafjölda um tiltekin svæði. Tilgangur þess er m.a. að CV geti upplýst viðskiptavini og framtíðar viðskiptavini um kerfið, notkunarmöguleika þess, álagsþol og árangur af notkun kerfisins, s.s. hversu hátt hlutfall af ökutækjafjölda kerfið nær að vinna úr, telji CV það ekki ganga gegn hagsmunum notenda.
Þrátt fyrir framangreint áskilur CV sér einnig rétt til að afhenda upplýsingar notenda til þriðja aðila ef:
- CV ber að gera það samkvæmt lögum.
- Ef lögregla óskar eftir upplýsingum þegar um slys eða meintan refsiverðan verknað er að ræða.
- CV er keypt eða sameinast öðru fyrirtæki en aðeins í samræmi við ákvæði þessarar öryggisstefnu (þannig að nýja fyrirtækið reki sambærilega þjónustu áfram með sömu skilmálum).
- Notendaskilmálar og öryggisstefna CV verður ávallt aðgengileg á vefsvæðinu Myparking.is.
- CV áskilur sér rétt til að breyta öryggisstefnu þessari eftir þörfum og án sérstakra tilkynninga.