"

🚀 Kíktu á bakvið tjöldin!

Við erum að taka tjalda.is í gegn - kíktu á nýja vefinn.

Skoða nýjan tjalda.is

Hafnarfjörður

Kósý lítið tjaldsvæði á Víðistaðatúni í Hafnarfirði. Stutt í alla þjónustu og mjög fjölskylduvænt. Grillhús og leiksvæði er við tjaldsvæði.


Þjónusta í boði

  • Sturta
  • Leikvöllur
  • Þvottavél
  • Kalt vatn
  • Rafmagn
  • Uppþvottaaðstaða
  • Gönguleiðir
  • Salerni
  • Losun skolptanka
  • Heitt vatn
  • Frítt fyrir börn
  • Grill

Lýsing á aðstöðu

Ef þú ert að leita að fjölskylduvænu tjaldsvæði nálægt Reykjavík þá er tjaldsvæðið í Hafnarfirði rétti staðurinn. Hafnarfjörður er þriðji stærsti bær Íslands með um 30.000 íbúa. Bærinn er oft kallaður bærinn í hrauninu enda er hraun allsráðandi. Einnig er Hafnarfjörður með marga íbúa huldufólks. Keyrt er inná Víðistaðatún eftir gangstíg við hlið Lava Hostel/ skátaheimilisins.

Tjaldsvæði Hafnarfjarðar er á Víðstaðatúni sem er fallegur listaverkagarður umkringdur hrauni. Rólegt, hlýlegt og fjölskylduvænt umhverfi með nægu plássi fyrir börnin til að leika sér. Stutt er í alla þjónustu og miðbæ Hafnarfjarðar.
Heitt og kalt vatn, sturtur, þvottavél, Wi-Fi og salerni við tjaldsvæðið. Einnig eru þar útivaskar til uppvasks og rafmagn á svæðinu.

Við bjóðum ekki lengur upp á eldunaraðstöðu.

Hámarks dvöl eru 7 nætur.


Verð

Verð 2025

Tjald: 3.000 kr. (einn fullorðinn innifalið)
Bíll eða hýsi: 3.500 kr. (einn fullorðinn innifalið)
Auka fullorðinn: (14 ára og eldri): 2.500 kr
Frítt fyrir 13 ára og yngri.
Rafmagn: 1.300 kr.
Gistináttaskattur er 400 kr á tjald/bíl eða hýsi fyrir hverja nótt.