
🚀 Kíktu á bakvið tjöldin!
Við erum að taka tjalda.is í gegn - kíktu á nýja vefinn.
Tjaldsvæðið er staðsett við þorpið Hauganes. Hauganes er sérlega snyrtilegt þorp, rólegt og örugg
Tjaldsvæðið er á kyrrlátum stað í litla þorpinu Hauganesi við utanverðan Eyjafjörð, um 20 mínútna akstur frá Akureyri og 10 mínútur frá Dalvík.
Við tjaldsvæðið eru salerni, sturta, aðstaða til uppþvotta, þvottavél rafmagnstenglar og stutt á veitingastaðinn Baccalá bar, á leikvöll með nýjum leiktækjum og í fallega sandfjöru með heitum pottum og sturtuaðstöðu sem hafa fengið heitið Fjöruböðin Hauganesi. Ný salerni eru nú við pottana.
Sumarið 2025 verða teknir í gagnið 36 nýir rafmagnstenglar á svæði 2 sem er slétt og fínt tún ofan við eldra svæðið.
Upplýsingar og greiðslur má nálgast á fjorubodin.is en einnig má greiða í nýju þjónustuhúsi við pottana þar sem er posi og seldir drykkir, ís og minjagripir eða á Baccalá bar á Hauganesi. Vinsamlegast verið við því búin að starfsfólk okkar óski eftir að sjá kvittun fyrir greiðslu.
Á Hauganesi er auk veitingastaðarins rekin fiskbúð Ektafisks og minjagripaverslun í sama húsnæði. Í þorpinu er einnig hvalaskoðunarfyrirtækið Whales.is sem siglir skipulagðar ferðir nokkrum sinnum á dag yfir sumarmánuðina.
18 ára aldurstakmark er á tjaldsvæðinu nema í fylgd með forráðamönnum.
Verð 2025
Verð á nótt á tjaldsvæði:
Fullorðnir: 3.000 kr
Börn 6-12 ára: 1.000 ISK
Eldri borgarar/öryrkjar 2.500 kr.
5 ára & yngri: Frítt!
Rafmagn 2.000 kr.
Verð í heita potta:
Fullorðnir: 2.500 kr
Börn 6-12 ára: 1.000 kr.
5 ára & yngri: Frítt!