Tjaldsvæðið er rúmgott með nýju salernishúsi auk mjög góðs aðstöðuhús þar sem má elda og snæða mat. Gaddastaðaflatir eru hluti af hestamannasvæði og skammt frá má sjá Rangárhöllina og skeiðvöll þar sem hið margfræga Landsmót íslenska hestsins er haldið reglulega.
Tjaldsvæðið er fjarri skarkala Hellu en samt mjög stutt í alla þjónustu á Hellu svo sem sundlaug, verslanir og annað. Til að komast að tjaldsvæðinu skal ekið veg merktum Gaddastaðaflatir við Stracta hótel til suðurs. Tjaldsvæðið er liggur svo á vinstri hönd þegar ekið hefur verið 2-300 metra.
Opnunartími
Opið 1/6 -15/9
Verð 2024
Fullorðnir: 2.450 kr.
Börn: frítt fyrir börn 15 ára og yngri
Eldri borgarar og öryrkjar: 1.500 kr
Rafmagn: 1.300 kr sólahringurinn.
Gistináttaskattur: 333 kr á einingu.