"

Strútur

Tjaldsvæðið er við skála Útivistar við fjallið Strút á Mælifellssandi.


Þjónusta í boði

  • Salerni
  • Sturta
  • Svefnpokapláss
  • Eldunaraðstaða

Lýsing á aðstöðu

Við tjaldsvæðið Strút er ákjósanlegur áningarstaður á milli Álftavatna í austri og Hvanngils eða Emstra í vestri. Hægt er að velja um fjölda áhugaverðra gönguleiða í nágrenni skálans. Göngukort er til sölu á skrifstofu Útivistar eða hjá skálaverði, sem er á staðnum frá byrjun júlí og fram í miðjan ágúst. Bílvegur liggur að skálanum frá Mælifellssandi. Sé komið Fjallabaksleið syðri (F210) að vestan er beygt til norðurs á vegamótum þar sem er GPS-hnit N63°48.023 / V18°57.351. Einnig er hægt að aka Öldufellsleið (F232) að austan og beygt er til norðurs á sömu vegamótum.


Verð

Verð 2023

Aðstöðugjald tjaldgesta: 2.000 kr á mann
Sturta: 500 kr